Bara tveir sem kusu ekki

Sigfús afhendir Gísla Auðbergssyni, formanni yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar kjörkassann úr Mjóafirði.
Í Mjóafirði er ein minnsta kjördeild landsins. Þar eru 20 á kjörskrá og í dag mættu 14 til að greiða atkvæði. Fjórir kusu utan kjörfundar en tveir mættu ekki á kjörstað og þá var sett í gang sérstök áætlun.
„Til þess að fullvissa okkur um þaðað þau ætluðu ekki að kjósa þá við hrindum bara í þau og fegnum það staðfest að þau ætluðu ekki að kjósa. Þá var þetta bara klárt fyrir hádegi, segir Sigfús Vilhjálmsson, formaður kjörstjórnar í Mjóafirði.
Þó allir sem ætluðu að kjósa væru búnir fyrir hádegi þurfti lögum samkvæmt að halda kjörstað opnum til klukkan fimm.
Sú var tíð að tvær kjördeildir voru í Mjóafirði en nú hefur Grundarkjördeild verið aflögð. „Nú er bara ein kjördeild
og hún er hér á Brekku. Og verður hér áfram, ég er búinn að fullvissa mig um það," segir Sigfús en til stóð að leggja hana jafnvel niður. „En það er ekki svo gott að gera það því við getum verið hér býsna einangruð á veturna og það eru mannrétindi á kjósa. Það vilja allir kjósa. Það er ekkert
gaman öðruvísi. Þannig er nú það."
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









