Bann við áfengisauglýsingum hert

Horft ofan í ölglas. Mynd: Shutterstock.


  • Prenta
  • Senda frétt

Áfengislagafrumvarp sem herðir meðal annars á banni við áfengisauglýsingum verður lagt fram á Alþingi í haust. Samkvæmt því varða brot á banninu allt að 10 milljóna króna sekt.

Frumvarpið var lagt fram fyrri hluta síðasta árs og svo aftur á síðasta þingi en varð ekki að lögum. Og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lagði frumvarpið fyrir ríkisstjórnarfund í fyrradag. 

Léttöl ekki auglýst ef umbúðir eru eins og bjórs

Í frumvarpinu er lögð sérstök áhersla á að koma í veg fyrir að farið sé í kringum bann við áfengisauglýsinum, sem þegar er í lögum, með því að auglýsa óáfenga vöru með ríkri tilvísun til áfengrar vöru. Þannig verður bannað að auglýsa léttöl ef það ef það er í umbúðum líkum sterkari bjór.

Léttöl með 2,25% af hreinum vínanda má selja í matvörubúðum. Slíkt öl hefur verið auglýst mikið og margir gagnrýnt að þær auglýsingar séu dulbúnar bjórauglýsingar.

Neytendastofa fylgist með auglýsingum

Þá verður eftirlit með áfengisauglýsingum fært frá lögreglu til Neytendastofu og henni verður heimilað að ljúka málum, með því að sekta þá sem auglýsa áfengi. Getur sektin numið allt að 10 milljónum króna og jafnframt má Neytendastofa leggja á 500 þúsund króna dagsekt láti fyrirtæki ekki af háttseminni. Hingað til hefur þurft að kæra áfengisauglýsingar til lögreglu sem rannsakar málin og vísar til saksóknara. Að meðaltali hafa ríflega 20 mál komið til kasta lögreglu á hverju ári undanfarin ár en mörg þeirra hafa verið látin niður falla. 

Minnihluti allsherjar- og menntanefndar mótfallinn
Í nefndaráliti minnihluta allsherjar- og menntamálanefndar í vor, sem sjálfstæðismennirnir Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir standa að, er lagt til að frumvarpið nái ekki fram að ganga. Og vísar minnihlutinn meðal annars í skýrslu ráðherrastarfshóps þar sem fram komi að algert bann við áfengisauglýsingum sé ekki raunhæft. Og einnig vísar minnihlutinn í tillögur Félags atvinnurekenda sem vilji leyfa áfengisauglýsingar með skýrum takmörkunum. 








  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku