Bangsadeila Hvít-Rússa og Svía
Fyrst birt: 09.08.2012 22:26, Síðast uppfært: 10.08.2012 16:59
Flokkar: Erlent

Alexander Lukasjenko forseti Hvíta-Rússlands
Sendiherrar Evrópusambandsríkja í Brussel hittast á morgun á skyndifundi til að ræða refsiaðgerðir gegn Hvíta-Rússlandi vegna svokallaðrar bangsadeilu þeirra við Svía. Jafnvel er búist við að allir sendiherrar ríkja ESB verði kallaðir heim frá Minsk.
Deilan hófst fyrir rúmri viku þegar flugmenn á vegum sænskrar auglýsingastofu vörpuðu um 800 leikfangaböngsum til jarðar í Hvíta-Rússlandi. Við bangsana voru fest skilaboð til landsmanna um að berjast fyrir mannréttindum, sem eru fótum troðin í landinu. Alexander Lúkasjenko, forseti, varð æfareiður, kenndi sænsku stjórnvöldum um og rak sendiherra Svía úr landi. Svíar svöruðu í sömu mynt og Carl Bildt, utanríkisráðherra, sagði brottrekstur sænska sendiherrans, Stefans Erikssons, vera vegna þess að hann hefði hitt stjórnarandstæðinga og látið sig varða mannréttindi í landinu. Hvít-Rússar gerðu deiluna þá enn harðari með því að reka alla sænska stjórnarerindreka úr landi. Ekki var að heyra neinn sáttatón á Alexander Lúkasjenko, forseta, á blaðamannafundi í Minsk í dag. Þar var hann harðorður um Eriksson sendiherra, sagði hann hafa starfað ólöglega í Hvíta-Rússlandi og verið í sambandi við fimmtu herdeildarmenn, eins og forsetinn orðaði það.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














