Azarenka vann Opna ástralska

Victoria Azarenka með sigurlaunin

Hin 22 ára gamla Victoria Azarenka frá Hvíta-Rússlandi sigraði Mariu Sharapovu frá Rússlandi í úrslitum í einliðaleik kvenna á Opna ástralsa meistaramótinu í tennis í dag.

Azarenka vann Sharapova í tveimur settum 6-3 og 6-0 og hirti þar með efsta sæti heimslistans í tennis af Caroline Wozniacki frá Danmörku sem féll úr leik í átta liða úrslitum á mótinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Tennis, Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku