Ævintýri atvinnulausu AGK-mannanna

Ólafur Stefánsson stóð í ströngu. Mynd: Nordic Photos/AFP.


  • Prenta
  • Senda frétt

Danski fjölmiðillinn Ekstra Bladet gerir mikið úr þætti þremenninganna úr AGK í sigri Íslands á Frökkum á Ólympíuleikunum í gærkvöldi, og ekki síst þeirri staðreynd að allir eru leikmennirnir nú án félags og atvinnulausir eftir gjaldþrot liðsins.

Blaðamaður Ekstra Bladet segir að íslenska liðið, með þá Ólaf Stefánsson, Arnór Atlason og Snorra Guðjónsson innanborðs hafi náð frábærum árangri með því að sigra heims- og ólympíumeistara Frakka. Þetta geri líka að verkum að sá möguleiki sé fyrir hendi að úrslitaleikurinn í handbolta á Ólympíuleikunum verði milli frændþjóða, Íslands og Danmerkur, að því gefnu að Danir herði sig upp og leggi Svía í fjórðungsúrslitum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku