Átök í Senegal
Fyrst birt: 27.01.2012 22:32 GMT, Síðast uppfært: 28.01.2012 02:23 GMT

Mótmælendum og lögreglu lenti saman í Senegal í kvöld eftir að hæstiréttur landsins samþykkti framboð Abdoulaye Wades forseta. Wade sem er hátt á níræðisaldri, sækist nú eftir þriðja kjörtímabili í embætti.
Ungmenni, sem safnast höfðu saman í höfuðborginni Dakar, grýttu lögreglu sem svaraði fyrir sig með kylfum og táragasi. Rétturinn. sem samþykkti framboð hins aldna forseta - hafnaði framboði tónlistarmannsins Youssu N'dours.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







