Atli og Rakel unnu fyrsta mótið
Fyrst birt: 09.09.2012 12:30, Síðast uppfært: 09.09.2012 12:31
Flokkar: Íþróttir

Fyrsta badmintonmót keppnistímabilsins á mótaröð Badmintonsambands Íslands, Einliðaleiksmót TBR, var haldið á föstudagskvöld. Eingöngu var keppt í meistaraflokki í einliðaleik.
Fjórtán keppendur mættu til leiks í karlaflokki og bar Atli Jóhannesson úr TBR sigur úr býtum eftir að hafa unnið Jónas Baldursson úr TBR 21-16 og 21-18 í úrslitum.
Níu keppendur tóku þátt í einliðaleik kvenna. Rakel Jóhannesdóttir úr TBR stóð upp sem sigurvegari en hún vann Margréti Jóhannsdóttur úr TBR 21-16 og 21-16 í úrslitum.
Næsta mót á mótaröð BSÍ, Atlamót ÍA, verður haldið helgina 29. - 30. september en alls verða mótin tíu á tímabilinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












