Atlantsolía og Orkan lækka verð
Fyrst birt: 18.05.2012 07:43, Síðast uppfært: 18.05.2012 09:13
Flokkar: Innlent, Samgöngumál

Atlantsolía lækkaði í morgun bensínlítrann um tvær krónur og dísellítrann um þrjár krónur. Bensínlítrinn hjá Atlantsolíu kostar nú 255,10, disellítrinn 253,70 krónur. Orkan lækkað eldsneytisverð sitt í 255,0 krónur fyrir bensínlítrann en 253 krónur fyrir dísilolíulítrann.













