Ætlaði að myrða Barack Obama

22 ára úkraínskur karlmaður hefur viðurkennt að hafa lagt á ráðin um að myrða Barack Obama Bandaríkjaforseta. Maðurinn fékk landvistarleyfi í Bandaríkjunum til að stunda þar nám. Það varð þó lítið úr því að maðurinn gengi menntaveginn heldur tók hann til við að undirbúa tilræði við forsetann.
Hann var í samskiptum við óþekktan mann sem tengist íslamskri hreyfingu í Úsbekistan. Þeir ræddu hvernig best væri að myrða forsetann. Ein hugmynd var sú að skjóta hann með leyniskytturiffli af löngu færi. Því hafnaði maðurinn þar sem hann hafði ekki þjálfun í notkun slíks riffils og taldi slíkt drápstól vera of dýrt. Þess í stað vildi hann freista þess að komast nærri forsetanum og skjóta hann með sjálfvirku skotvopni. Þegar hann keypti slíkt vopn vildi ekki betur til en svo að seljandinn var rannsóknarlögreglumaður á vegum Bandaríkjastjórnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







