Ætla ekki að framselja son Gaddafis
Fyrst birt: 11.02.2012 15:34, Síðast uppfært: 11.02.2012 15:37

Saadi Gaddafi.
Yfirvöld í Afríkuríkinu Níger, segjast ekki ætla að framselja son Gaddafis til Líbíu, þótt hann hafi opinberlega hvatt til uppreisnar í fyrrum heimalandi sínu.
Saadi Gaddafi, sonur einræðisherrans, fékk hæli í Níger eftir stjórn föður hans í Líbíu féll og ný stjórn tók við völdum. Hann sagði nýlega í sjónvarpsviðtali að uppreisn gegn nýjum valdhöfum væri í aðsigi og að hann myndi snúa til baka. Bráðabirgðastjórnin í Líbíu hefur óskað eftir því við yfirvöld í Níger að þau framselji Saadi, en því hefur til þessa verið hafnað.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







