Ásdís úr leik á EM



  • Prenta
  • Senda frétt

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni komst ekki í úrslit á EM í frjálsum sem haldið er í Helsinki í Finnlandi.

Ásdís kastaði lengst 55,29 metra en hefði þurft að ná 56,68 metrum til að komast upp úr undankeppninni. Á síðustu tveimur mótum kastaði Ásdís yfir 58 metra. Ásdís hafnaði í 13. sæti en tólf efstu komust í úrslitin. Er þetta því endurtekning frá HM í Suður-Kóreu í fyrra þegar hún datt út með nákvæmlega sama hætti.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku