Arnar Snær setti vallarmet

Flokkar: Golf, Íþróttir
Arnar Snær Hákonarson setti vallarmet á Kiðjabergsvelli í dag - Mynd: www.gsimyndir.net


  • Prenta
  • Senda frétt

Arnar Snær Hákonarson úr GR og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK eru efst í í karla- og kvennaflokki eftir fyrsta hring á fimmta móti sumarsins á íslensku golfmótaröðinni sem hófst á Kiðjabergsvelli í dag.

Arnar Snær lék hringinn í dag á 66 höggum eða fimm höggum yndir pari og er það nýtt vallarmet en eldra metið var 68 högg. Andri Þór Björnsson úr GR er í öðru sæti á 68 höggum eða þremur höggum undir pari en Einar Haukur Óskarsson úr GK er þriðji á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari.

Guðrún Brá lék á 72 höggum í dag eða einu höggi yfir pari, Karen Guðnadóttir úr GS er önnur á 74 höggum eða þremur höggum yfir pari en Ingunn Gunnarsdóttir úr GKG er þriðja á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari.

Nánar um mótið á heimasíðu Golfsambands Íslands.

 

 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku