Árás á vefsíðu CIA

Vefsíða bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, lá niðri í marga klukkkutíma í nótt - vegna tölvuárásar á vegum Anonymus hópsins. Þá hafa vefsíður Alabama ríkis og námuvinnsluráðuneytisins í Mexíkó einnig orðið fyrir árás Anonymus.
Talskona CIA vildi ekki staðfesta við fjölmiðla að síða leyniþjónustunnar væri óaðgengileg vegna árásar en Anonymus-hópurinn hefur stært sig af árásunum á samskiptasíðum.
Tölvuþrjótarnir í Anonymus hópnum hafa gert árásir víða í netheimum undanfarin misseri og sendu frá sér myndband í gær þar sem þeir hótuðu árásum á Ísrael.
Þá lýsti hópurinn stríði á hendur mexíkósku eiturlyfjagengi í nóvember en þekktastur varð Anonymus hópurinn þegar hann kom vefsíðunni Wikileaks til stuðnings með því að herja á vefþjóna fyrirtækja og löggæslustofnana sem þeir töldu til óvina Wikileaks. Enn hefur hópurinn ekkert gefið uppi um hvort og þá hvaða ástæður liggi að baki árásinni á CIA.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentFleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Anonymous hótar Ísrael





