Angela Merkel til Kænugarðs ef ...
Fyrst birt: 26.06.2012 15:57, Síðast uppfært: 26.06.2012 16:03

Angela Merkel fagnar. Mynd: Nordic Photos/AFP
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ætlar að vera viðstöðdd úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu í Kænugarði í Úkraínu ef Þjóðverjar leika þar til úrslita á sunnudag.
Fram kemur í þýskum fjölmiðlum að Oliver Bierhoff þjálfara hafi verið greint frá þessu, en ekki verði tilkynnt formlega um ákvörðun kanslarans fyrr en eftir leikinn við Ítali á fimmtudag. Merkel og fleiri þýskir stjórnmálamenn hafa til þessa sagt að þeir ætluðu ekki að mæta á leiki landsliðsins í Úkraínu í mótmælaskyni við illa meðferð á Júlíu Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra landsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













