Alma dregin til Akureyrar í slipp
Fyrst birt: 02.12.2011 17:38, Síðast uppfært: 02.12.2011 18:58

Flutningaskipið Alma sem var hætt komið við Hornafjörð í byrjun nóvember fer í viðgerð í Slippnum á Akureyri. Gengið hefur verið frá því að Landhelgisgæslan dragi skipið þangað.
Það verður þó bið á því að gert verði við skipið því beðið er eftir nýju stýri og stýrisstamma frá útlöndum. Ekki er búist við að það komi til landsins fyrr en undir jól í fyrsta lagi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentFleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Kyrrsetningu Ölmu aflétt
Alma kyrrsett vegna björgunarlauna





