Allt vitlaust á blaðamannafundi

Breski hnefaleikakappinn Dereck Chisora er í haldi lögreglu í München í Þýskalandi sem rannsakar nú atvik sem kom upp á blaðamannafundi eftir bardaga Chisora og Úkraínumannsins Vitaly Klitschko í gærkvöld.

Chisora tapaði gegn úkraínska þungavigtarheimsmeistaranum en notaði tækifærið eftir bardagann og gagnrýndi landa sinn, fyrrverandi þungvigtarheimsmeistarann David Haye, fyrir frammistöðu sínu í bardaga gegn hinum Klitschko bróðurnum, Wladimir, í fyrra. Haye var viðstaddur og svaraði fyrir sig sem leiddi til þess að bresku hnefaleikamennirnir lentu í áflogum. Í kjölfarið hótaði Chisora að skjóta og brenna Haye en lögreglan í München lýtur málið alvarlegum augum og stöðvaði Chisora á flugvellinum í morgun. Haye hefur ekki enn fundist en þýska lögreglan hyggst einnig yfirheyra hann vegna málsins. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku