Alfreð og félagar komust áfram

Alfreð Finnbogason og félagar í Helsingborg eru komnir áfram í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildarinnar


  • Prenta
  • Senda frétt

Alfreð Finnbogason og félagar hans í sænska liðinu Helsingborg eru komnir áfram í þriðju umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu eftir 3-0 heimasigur á TNS frá Wales í kvöld en fyrri leik liðanna lyktaði með markalaustu jafntefli og því samanlögð úrslit 3-0 Helsingborg í vil.

Alfreð var í byrjunarliði Helsingborg í kvöld en fór af leikvelli eftir 70 mínútna leik.

Helsingborg mætir annað hvort Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi eða pólska liðinu Slask Wroclaw í þriðju umferð.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku