Akureyrarbær vill aukið hlutafé

Bæjarstjórn Akureyrar hefur lýst yfir vilja sínum til að koma að aukningu hlutfjár í samstarfi við aðra hluthafa vegna Vaðlaheiðargangna. Þetta var samþykkt samhljóða á bæjarstjórnarfundi í gær.

Bæjarstjórnin skorar jafnframt á Alþingi að ljúka málinu sem fyrst svo hægt verði að hefjast handa við framkvæmdina.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku