Ákæru enn beðið

Mynd:Þórgunnur Oddsdóttir


  • Prenta
  • Senda frétt

Enn hefur ekki verið gefin út ákæra á hendur manni sem dró sér 15 til 20 milljónir króna af reikningi Norðurlandaráðs, þótt hann hafi játað brot sitt. Rúmt ár er síðan málið komst upp.

Það var í apríl í fyrra sem greint var frá máli manns sem dró sér fé af reikningi íhaldshóps Norðurlandaráðs á Íslandi. Starfsmaðurinn hafði aðstöðu á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Þar vöknuðu grunsemdir um misferli við athugun á reikningum vegna starfsemi íhaldshópsins og var hann leystur frá störfum í kjölfarið. Talið er að fjárdrátturinn hafi staðið frá því árið 2009.

Samkvæmt heimildum fréttastofu viðurkenndi maðurinn að hafa brotið af sér. Málið var strax kært til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra og færðist það svo yfir til embættis sérstaks saksóknara við sameiningu embættanna. Þótt 14 mánuðir séu frá því að málið komst upp og maðurinn hafi játað, hefur enn engin ákæra verið gefin út.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði í samtali við fréttastofu í dag að hann hafi vísað málinu aftur til rannsóknar þar sem hann hafi gert ákveðnar athugasemdir við rannsóknina. Um sé að ræða tiltölulega lítið og afmarkað verkefni sem verði unnið á skömmum tíma. Að því loknu sé að vænta niðurstöðu ákæruvaldsins um það hvort gefin verði út ákæra eða ekki. Sú niðurstaða ætti að liggja fyrir í síðasta lagi í haust.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku