Ákærður undirmaður kærir yfirmann

Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi forstöðumaður fangelsisins á Kvíabryggju, hefur farið þess á leit að lögregla skoði embættisfærslu Páls Winkel fangelsismálastjóra. Geirmundur hefur ekki fengið afhenta muni sem hann segist eiga og hafa verið geymdir á Kvíabryggju.

Geirmundur var forstöðumaður á Kvíabryggju þar til hann var rekinn í fyrra og ákærður fyrir fjárdrátt í starfi. Geirmundur hefur óskað eftir því að fá munina afhenta en verið neitað um það. Meðal munanna sem um ræðir eru lyftingatól sem voru seld líkamsræktarstöð. Einnig trilla sem Geirmundur mun hafa fengið frá föður sínum, sem var forstöðumaður á Kvíabryggju á undan honum. Því kærði Geirmundur Pál til lögreglu.

Páll Winkel furðar sig á kæru Geirmundar. „Það er gert ráð fyrir að hlutir sem eru í fangelsinu séu eign fangelsisins. Telji menn sig eiga einhverja hluti geta þeir framvísað nótu fyrir því.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku