Þynnka, handbolti og skapahár
Fyrst birt: 10.08.2012 11:03, Síðast uppfært: 10.08.2012 11:08
Flokkar: Afþreying, Virkir morgnar

Föstudagsuppgjörið var að sjálfsögðu á sínum stað í dag en hljóðverið fylltist af mönnum, börnum og dýrum upp úr kl. 10.
Það voru þeir Sólmundur Hólm, grínisti, og Guðfinnur Sigurvinsson, fréttamaður, sem aðstoðuðu Gunnu og Sölva við uppgjörið en báðir höfðu þeir með sér fylgihluti.
Meðal efnis til umræðu var Verslunarmannahelgin, Vestmannaeyjar, ágústþynnka, veðrið, Ronan Keating, handbolti og skapahár.
Sóli er afbragð eftirherma og að lokum tók hann óborganlegan Pál Óskar í tilefni Gay Pride.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













