Skemmtileg en aðeins of karlaleg



  • Prenta
  • Senda frétt

Hljómsveitin Dætrasynir á plötu vikunnar á Rás 2 um þessar mundir og eins og venjan er á föstudögum var Andrea Jónsdóttir beðin um að dæma hana.

Platan heitir Á ferð og flugi og hefur fengið að hljóma hér á rásinni reglulega undanfarna daga. Andrea Jónsdóttir er stödd í Englandi, en með hjálp nútímatækni gat hún samt sem áður sagt okkur álit sitt á plötunni.

Henni finnst hljómsveitin vera vel leikandi og skemmtileg. Textarnir eru nokkuð fyndnir en helst of karlalegir eða karlrembulegir. Efni textana pirrar hana örlítið og finnst Andreu strákarnir í hljómsvetinni of ungir fyrir slíka texta. Almennt er hún þó hrifin af plötunni og finnst hún vera vel samin og spiluð.

Einkunn: 7,6.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku