Músíktilraunir 2012

Músíktilraunir 2012 nálgast óðfluga og mun opnast fyrir skráningar 20. febrúar næstkomandi. Það er því mælt með að hljómsveitir og tónlistarmenn hefji undirbúning fyrir umsóknir.
Lengi hefur verið talað um að Músíktilraunir séu góður stökkpallur fyrir ungar og óreyndar hljómsveitir út í hinn "harða tónlistarbransa". Hljómsveitir á borð við Kolrössu Krókríðandi, Botnleðju, Maus, Mínus, Jakobínarínu, Agent Fresco og nú Of Monsters And Men eru ágætis vitnisburður um að ýmis ævintýri taka við að loknum tilraununum. Margar af þessum ofangreindu hljómsveitum stukku í djúpu laugina að loknum Músíktilraunum. Þær sveitir tóku upp breiðskífur, ferðuðust um heiminn og spiluðu með sínum uppáhalds hljómsveitum.
Einnig er reynslan og samveran við aðra tónlistarmenn mjög verðmæt og mikilvægur þáttur fyrir nýja og upprennandi tónlistarmenn sem ætla að taka þátt. Nýjar hljómsveitir koma inn með nýjar og ferskar hugmyndir sem munu blómstra í hinni íslensku tónlistarflóru og er það einmitt einn helsti tilgangur Músíktilraunanna.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla sem vilja koma tónlist sinni á framfæri, á flottum stað og með góðum græjum og fá þá viðurkenningu sem þau eiga skilið.
Verðlaunin verða stórglæsileg eins og undanfarin ár, en munu fyrstu þrjú sætin verða verðlaunuð, ásamt hljómsveit fólksins, gítarleikara, bassaleikara, forritara/hljómborðsleikara, söngvara/rappara, trommara og textasmið.
Við hvetjum alla til að taka þátt í Músíktilraunum 2012.
Opið er fyrir umsóknir frá 20. febrúar - 5. mars næstkomandi og skila þarf tveim lögum inn með umsókninni.
Nánari upplýsingar:
musiktilraunir@itr.is
www.facebook.com/musiktilraunir1
www.musiktilraunir.is
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







