Falleg saga manns og hests

Nýjasta verkefni Steven Spielberg, sagan af stríðsfáknum, er falleg saga af einstöku sambandi manns og hests.

Hún er jafnframt átaka- og stríðssaga þar sem skiptast á skin og skúrir í lífi hestsins Joey og þeirra sem hann höndla. Framsetning myndarinnar er gamaldags og einföld, stundum barnaleg á köflum og minnir á fjölskyldumyndir eldri tíma, s.s. myndirnar um Lassie, Bonanza þættina ofl. slíka. Ekkert er til sparað við gerð hennar, leikmynd, leikaraval og tónlist John Williams í fremsta gæðaflokki. Þrátt fyrir það líður hún fyrir ákveðna galla í framsetningunni og er langdregin á köflum. Kvikmyndataka og listræn stjórnun eru hins vegar af allra bestu gerð og sumar senur myndarinnar eru óhemju fallegar og vel útfærðar. Hesturinn Joey er stjarna myndarinnar og skyggir á alla aðra "leikara."
Falleg mynd fyrir fjölskylduna, einföld og einlæg, útlit og kvikmyndataka afbragð. Þrjár stjörnur af fimm.


Hulda G. Geirsdóttir

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku