Dalvíkingar í Popplandspunkti
Fyrst birt: 09.08.2012 15:04, Síðast uppfært: 09.08.2012 15:05

Popppunktur og Poppland sameinuðu krafta sína í dag líkt og undanfarna fimmtudaga þegar Felix Bergsson mætti í hljóðver eitt til Óla Palla.
Keppendur í dag voru að venju magnaðir, en það var annars vegar söngvarinn Friðrik Ómar og hins vegar Jón Kjartan Ingólfsson, bassaleikari hljómsveitarinnar South River Band. Líkt og í undanförnum Popplandspunktum var byrjað á hraðaspurningum og að þeim loknum farið í bjölluspurningar. Það þarf vart að taka fram að keppnin var æsispennandi og stórskemmtileg
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













