Búðarhálsvirkjun
Fyrst birt: 22.02.2012 20:37, Síðast uppfært: 22.02.2012 20:37

Sem stendur eru ekki margar stórframkvæmdir í gangi á landinu. Það er þó verið að byggja eina 95 megavatta virkjun við Þjórsá.
Það er ef til vill ekki mikið miðað við 690 megavatta Kárahnjúkavirkjun en framkvæmdirnar hafa ef til vill líka vakið svona litla athygli vegna þess að þær eru svo óumdeildar. Það er áratugur síðan öll möt og öll leyfi fyrir Búðarhálsvirkjun lágu fyrir. Það var hins vegar ekki hafist handa við byggingu hennar fyrr en í nóvember 2010 og allt sett á fullt þegar fjármögnun lauk í fyrravor. Þóra Arnórsdóttir og Benedikt Ketilsson heimsóttu svæðið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







