Bjarnarkló, víðerni, Lindarhvoll og eldgosamyndir

Bjarnarkló
Í þættinum laugardaginn 5. nóvember fræðumst við um bjarnarkló í Reykjavík, fjöllum um vegaslóða og friðun hálendisins, fræðumst um kvikmyndasýningar um eldgos og heimsækjum bæinn Lindarhvol í Þverárhlíð í Borgarfirði
Bjarnarkló var til umfjöllunar í fréttum nú á haustdögum. Hún breiðist víða yfir ræktað land og getur valdið slæmum brunasárum ef safi hennar snertir húð. Í mörgum nágrannalöndum okkar hefur mikil vinna verið lögð í að uppræta þessa plöntu. Við fræðumst um bjarnarkló í Reykjavík og fleiri plöntur af tröllahvannaætt sem hér vaxa.
Hálendið og friðun þess hefur verið nokkuð í umræðunni. Vegna hinna fjölmörgu vegaslóða sem liggja þvers og kruss um landið er ekki mikið eftir af ósnortnum víðernum. Slík landsvæði eru ekki aðeins mikilvæg fyrir þá sem þangað koma heldur líka fólk sem veit að það mun liklega aldrei koma þangað. Bara vitneskjan um tilvist þeirra er þeim mikils virði.
Mannlíf í nágrenni gömlu hafnarinnar í Reykjavík verður stöðugt fjölbreyttara og áhugaverðara. Nýr hlekkur í þeirri fjölbreyttu flóru er Volcano house, þar geta gestir séð áhugaverðar myndir frá Vestmanneyjum og Eyjafjallagosinu með skýringum á fleiri en einu tungumáli, skoðað íslenska steina og fengið sér kaffi.
Við bregðum okkur upp í Þverárhlíð í Borgarfirði og staðnæmumst á bænum Lindarhvoli. Þaðan er fallegt útsýni. Hafnarfjallið blasir við í suðvestri og Skarðsheiðin er beint í suðri og í góðu skygni blasir Skessuhornið við. Framundan eru svo Langjökull, Fantofell og Okið. ----Við byrjum að vanda á spurningu dagsins og spyrjum um Langanes. Milli hvaða fjarðar og flóa liggur það? Hversu langt er það og hvað heytir ysti hluti þess? Hvað heitir hæsta fjallið á nesinu, hversu hátt er það og hvenær var reist þar ratsjárstöð? Hvaða þorp er á Langanesi og nefnið tvo aðra þéttbýlistaði sem voru á Langanesi en eru nú komnir í eyði?
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







