Afþreying á afslætti!

Afþreying á jökli, gengið á broddum

Laugardaginn 26.nóvember. Réttur almennings til farar um óræktuð eignarlönd, Guðrún og Kjartan, afsláttarkort og afþreying, og verðgildi Heiðmerkur, er efni þáttarins.

Með náttúruverndarlögum 1971 var almannarétturinn þrengdur frá því sem verið hafði allt frá Grágás þar sem landeigendur mega girða óræktuð eignarlönd í óbyggð jafnt sem byggð og takmarka þannig umferð um þau . Lögin eru nú í endurskoðun og lagt er til að rétturinn verið rýmkaður en þó án þess að afnema rétt landeigenda til að útiloka umferðina. Við heyrum af því.                                                    

Laxdælasaga hverfist um ástarþríhyrninginn Bolla Þorleiksson, Kjartan Ólafsson og Guðrúnu Ósvífursdóttur. Guðrún  er sögð kvenna vænst er upp uxu á Íslandi bæði í ásjónu  og vitsmunum. Hún var kurteis kona svo allt þótti barnavípur það er aðrar konur höfðu í skarti hjá henni . Allra kvenna var hún kænst og best orði farin. Hún var örlynd kona.  Við gluggum í Laxdælu.

Undanfarin ár hefur framboð á fjölbreyttri afþreyingu aukist mjög hér á landi. Hægt er að fara í hjólaferðir, sleðaferðir, köfun, ísklifur, hvalaskoðun auk hestaferða, bátsferða og fleiri þekktari valkosta.  Það eru nær eingöngu  erlendir gestir sem nýta sér þessa þjónustu. Verðið hefur verið ýmsum Íslendingum en nú er hægt að kaupa kort sem býður að tveir geti farið á verði eins.

Á síðustu árum hefur ásókn eftir óbyggðu landi í nágrenni höfuðborgarsvæðisins aukist mjög og hefur meðal annars verið sótt að útivistarsvæðinu Heiðmörk. Unndanfarið hefur á vegum Háskóla Íslands verið unnið að rannsókn þar sem leitast er við að leggja mat á hvers virði þetta útivistarsvæði er. Við höldum upp í Heimörk og fræðumst um gildi hennar.

En við byrjum á spurningu dagsins og spyrjum um Skjálfandafljót: Um hvaða dal rennur áin,  hve löng er hún og hvar eru upptök hennar?  Nefnið 3 fossa í ánni hver þeirra er þekktastur og hvaða saga er tengd honum ?

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku