Áfram barist í Sýrlandi

Rústir eftir árásir í Homs.
Sýrlenskir stjórnarandstæðingar neita aðild að mannskæðum sprengjutilræðum í borginni Aleppo í gær. Sádi-Arabar hafa lagt fram drög að ályktun um lausn ófriðarins í Sýrlandi sem rædd verður í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á mánudag.
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna mistókst um síðustu helgi að ná samkomulagi um hvernig stilla mætti til friðar í Sýrlandi. Sádi-Arabar, sem ekki eiga sæti í ráðinu, hafa nú lagt fram nýja ályktun um lausn málsins fyrir allsherjarþingið. Hún er í svipuðum anda og ályktun Arababandalagsins sem ekki náði fram að ganga að því leyti að hvatt er til afsagnar Assads forseta og að átökum verði hætt þegar í stað. Þá er einnig lagt til að skipaður verði sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna um Sýrland.
Ályktun Sádanna verður rædd á allherjarþinginu á mánudaginn, ekkert ríki hefur þar neitunarvald en ályktanir þingsins eru heldur ekki lagalega bindandi. Á meðan þessu fer fram er áfram barist í Sýrlandi. Al-Jazeera hefur eftir stjórnarandstæðingum að það sem af er degi hafi fjórtán látið lífið í árásum stjórnarhersins, flestir í borginni Homs. Í gær létu 28 lífið og 235 særðust í tveimur sprengjutilræðum í Aleppo, sem er í norðurhluta landsins. Þetta er mesta mannfall í borginni frá því að uppreisnin gegn Assad hófst fyrir tæpu ári, en Aleppo er eitt helsta vígi forsetans.
Stjórnvöld fullyrða að hryðjuverkamenn úr röðum stjórnarandstæðinga hafi framið tilræðin. Sveitir stjórnarandstæðinga hafa viðurkennt að hafa staðið fyrir árásum í Aleppo í gær en talsmaður þeirra fullyrti í samtali við al-Jazeera í morgun að stjórnvöld hefðu sjálf staðið fyrir sprengingunum mannskæðu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Mikið mannfall í Sýrlandi
Glæpadómstóllinn fjalli um Sýrland
Nýjar refsiaðgerðir gegn Sýrlandi





