Afar mikill munur á sorphirðugjaldi

Ísfirðingar borga mest fyrir að láta hirða hjá sér sorpið.
Það er þrefalt dýrara að hafa öskutunnu á Ísafirði en á Seltjarnarnesi. Sorphirðugjald hækkar í flestum af fjölmennustu sveitarfélögum landsins á þessu ári. Mesta hækkunin verður í Vestmannaeyjum þar sem gjaldið hækkar um rúmar átta þúsund krónur.
Sorphirðugjaldið er hæst á Ísafirði, um 43 þúsund krónur á tunnu, sem er það sama og í fyrra. Lægsta gjaldið er á Seltjarnarnesi, rúmar 16 þúsund krónur. Sorphirðugjaldið hækkar frá fyrra ári hjá 10 sveitarfélögum af 15 þeim fjölmennustu. Mesta hækkunin á er í Vestmannaeyjum. Þar var gjaldið í fyrra rúmar 23 þúsund krónur á íbúð en er nú tæpar 32 þúsund krónur. Í Kópavogi nemur hækkunin 27 prósentum frá því í fyrra og 23 prósentum í Mosfellsbæ.
Reykvíkingar hækkuðu útsvarsprósentuna
Fasteignagjöld eru aðal tekjustofn sveitarfélaganna. Þau skiptast í fasteignaskatt, holræsagjald, vatnsgjald, sorphirðugjald og lóðaleigu.
13 af 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins innheimta hámarks leyfilegt útsvar sem er 14,48%. Eina sveitarfélagið sem hækkar útsvarið á þessu ári er Reykjavíkurborg. Þar hækkar útsvarið um 0,6%. Lægst er útsvarið í Garðabæ, 13,66%, og á Seltjarnarnesi, 14,18%.
Fasteignamat lækkaði á Reyðarfirði
Fasteignamat fyrir fjölbýli hækkaði hjá öllum 15 sveitarfélögunum í öllum hverfum. Hækkunin er frá 0,5% upp í 19%. Mest var hækkunin hjá Sveitarfélaginu Árborg 19%, í Vestmannaeyjum 16% og í Reykjavík - vestan Bræðraborgarstígs 13%.
Fasteignamatið lækkaði eingöngu í Fjarðarbyggð - Reyðarfirði um 4%.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







