Aðgerðir hafi borið góðan árangur

Hætt er við að fyrirtæki sjái sér ekki hag í því að bjóða upp á ný sérhæfð lyf hér á landi því þeim ber að selja þau á lægsta verði sem finnst á Norðurlöndunum. Þetta segir markaðsstjóri Actavis. Aðgerðir stjórnvalda til verðlækkunar á samheitalyfjum hafi hins vegar borið góðan árangur.

Talsmaður frumlyfjafyrirtækja sagði í fréttum Sjónvarps í gær að lyfjaverð hér á landi væri hærra en það þyrfti að vera. Benti hann á að stjórnvöld í Noregi lækka verð á lyfjum um allt að 85 prósent eftir að einkaleyfið fellur. Hér á landi sé engum slíkum reglum beitt.

Ólöf Þórhallsdóttir, markaðsstjóri Actavis, segir að það sé ekki rétt, aðgerðir stjórnvalda hér á landi beinist líka að verðlækkunum þó svo þær séu öðruvísi en í Noregi. Samheitalyf sem seld eru í apótekum þurfi að fylgja meðalverði á Norðurlöndunum. „Og til dæmis á árinu 2011 komu tíu ný samheitalyf frá Actavis og verðmunurinn miðað við frumlyf þá var að meðaltali 30 prósent.  Þannig að við teljum að það sem stjórnvöld hafa nú þegar gert í verðlagningu samheitalyfja skili mjög góðum árangri.“

Ólöf segir að verðlækkunin haldi síðan áfram eftir því hvernig samkeppnin þróast. Hins vegar eigi S-merktu lyfin, dýru lyfin sem notuð eru á sjúkrahúsum, að fylgja lægsta verðinu á Norðurlöndunum. Því þufi að breyta. „Það er ekki eðlilegt að svona smár markaður eins og Ísland sé ætið með lægsta mögulega verð og við teljum hættu á því að fyrirtæki sjái sér ekki hag í því að bjóða upp á ný sérhæfð lyf ef þau þurfa að fylgja þessari reglu,“ segir Ólöf. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku