Aðgangur að Núpsstað heftur

Frá Núpsstað. Mynd: Shutterstock


  • Prenta
  • Senda frétt

Ferðamenn eiga ekki lengur greiðan aðgang að bænhúsinu á Núpsstað. Þar hefur leiðinni að bílastæðinu verið lokað með hliði og ferðamenn sem vilja skoða bænhúsið verða að leggja bílum sínum við þjóðveginn. Leiðsögumaður sem fréttastofan ræddi við í dag, segir að þetta skapi stórhættu við veginn.

Auk þess sem aðkoman hefur verið heft, hafa verið tekin niður fræðsluskilti, sem Þjóðminjasafnið hafði veg og vanda af.
Bænhúsið á Núpsstað er í eigu Þjóðminjasafnsins, sem hefur haldið því við, sem og bæjarhúsunum sem gerð voru upp og endurhlaðin fyrir nokkrum árum. Þá eru náðhús á Núpsstað sem munu vera í umsjá ferðamálayfirvalda.

Lengst af hefur umsjón með Núpsstað verið á vegum Þjóðminjasafnsins, síðar í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð og sveitarstjórnina þar eystra.  Það samstarf er ekki lengur við lýði, eftir að nýr eigandi tók við staðnum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku