Aðföng innkalla rjómasprautu
Fyrst birt: 23.02.2012 09:45, Síðast uppfært: 23.02.2012 10:05

Þetta er rjómasprautan sem um ræðir.
Aðföng hafa innkallað eins lítra rjómasprautu af gerðinni Excellent Houseware, þar sem í ljós hefur komið að hún geti verið hættuleg neytendum. Varan var til sölu í Bónus frá því í mars í fyrra.
Þeir sem keyptu rjómaspautuna eru hvattir til að hætta notkun hennar nú þegar og skila við fyrsta tækifæri í verslunina þar sem hún var keypt. Hún verður endurgreidd að fullu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







