Aðalmeðferð í meiðyrðamáli

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Aðalmeðferð í meiðyrðamáli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á hendur Birni Bjarnasyni, fyrrverandi dómsmálaráðherra, fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Jón Ásgeir stefndi Birni vegna bókarinnar Rosabaugur yfir Íslandi sem Björn skrifaði. Bókin fjallar um Baugsmálið og kom út í fyrra. Í fyrstu prentun bókarinnar segir meðal annars að Jón Ásgeir hafi verið dæmdur fyrir fjárdrátt þegar rétt er að hann var dæmdur fyrir bókhaldsbrot. Skorað var á Björn að leiðrétta rangfærslurnar, stöðva dreifingu bókarinnar og biðjast afsökunar. Björn leiðrétti rangfærslurnar, sem hann kallar ritvillur eða mistök, í annari prentun bókarinnar og bað Jón Ásgeir afsökunar á heimasíðu sinni og í Morgunblaðinu.
Í máli Gests Jónssonar, lögmanns Jóns Ásgeirs, í dag kom fram að málið væri skólabókardæmi um meiðyrði. Bókin sé enda kynnt sem yfirlit um Baugsmálið og sögð skyldulesning á bókarkópu. Þá verði að líta til þess að Björn Bjarnason sé löglærður maður og fyrrverandi dómsmálaráðherra landsins og hafi því átt að geta farið rétt með staðreyndir málsins. Afsökunarbeiðni hans hafi verið í skötulíki.
Jón Ásgeir fer fram á ómerkingu ummælanna og krefst einnar milljónar króna í skaðabætur. Hvorki hann né Björn Bjarnason voru viðstaddir aðalmeðferðina í morgun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







