Að apa og skapa - Einar Scheving
Fyrst birt: 26.07.2012 23:23, Síðast uppfært: 26.07.2012 23:27
Flokkar: Að apa og skapa

Næsti gestur þeirra Ragnars Jónassonar rithöfundar og Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar leikara í þættinum Að apa og skapa er Einar Scheving tónlistarmaður. Einar er margverðlaunaður á sínu sviði, þrátt fyrir ungan aldur, og starfar einkum sem trommuleikari og við tónsmíðar.
Plata Einars, Cycles, var valin djassplata ársins 2007 á íslensku tónlistarverðlaunum og nýjasta plata hans, Land míns föður, sem kom út í fyrra, hlaut sérstaka viðurkenningu dómnefnda á íslensku tónlistarverðlaununum fyrr á þessu ári.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









