Á yfir höfði sér þungan dóm



  • Prenta
  • Senda frétt

Lögreglan í Tulsa hefur yfirheyrt Jermaine Jackson, sem grunaður er um að hafa myrt íslenskan pilt og félaga hans í skotárás í Tulsa. Þetta staðfesti Dave Walker, varðstjóri hjá morðdeild lögreglunnar í Tulsa. Hann vildi hins vegar ekki tjá sig hvort Jackson hefði játað eða ekki.

Walker segir í samtali við fréttastofu að Jackson sé enn í varðhaldi í Arkansas þar sem hann var handtekinn í vikunni. Hann virðist hins vegar ekki ætla að berjast gegn framsali til Oklahoma, eins og hann hefur rétt á, og því sé hann væntanlegur til Tulsa í vikunni. „Við erum búnir að yfirheyra hann,“ segir Walker við fréttastofu en vildi ekki gefa upp hvort Jackson hefði játað glæpinn eða ekki.

Að sögn Walker sást Jackson hins vegar ekki á eftirlitsmyndavélum en hann hefur verið kærður fyrir  „double first degree murder“ eins og það heitir á bandarísku lagamáli sem þýðir að viðkomandi hafi ætlað sér að drepa fórnarlömb sín. Walker segir að við því liggi þung refsing í Oklahoma-fylki og hann á allt eins von á því að Jackson muni „sitja lengi inni,“ eins og hann orðar það.

Réttarkerfið í Bandaríkjunum er talsvert frábrugðið því sem þekkist hér á Íslandi. Fyrst fær saksóknari tækifæri til að kynna sönnunargögn sín og leggja þau fyrir dómara og verjanda mannsins gefin kostur á að bregðast við þeim.  Næsta skref er þegar sakborningur verður leiddur fyrir dómara þar sem hann lýsir annað hvort yfir sekt eða sakleysi og í kjölfarið verður tekin ákvörðun um hvort og hvenær réttarhöld fara fram. Walker á ekki von á því að Jackson fái að ganga laus á meðan öllu þessu stendur en þess eru dæmi að svona ferli taki nokkur ár í réttarkerfinu. Walker segir því viðbúið  að dómur í máli Jackson falli hugsanlega ekki fyrr en eftir ár.

Fram hefur komið að Jackson og íslenski pilturinn þekktust fyrir árásina, voru meðal annars vinir á samskiptavefnum Facebook. Walker stendur hins vegar fast við þá skoðun sína að það skipti ekki meginmáli í rannsókninni, þeirra kunningsskapur komi málinu lítið við.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku