71 milljón úthlutað úr Pokasjóði



  • Prenta
  • Senda frétt

Úthlutað hefur verið 71 milljón króna úr Pokasjóði verslunarinnar. Hæstu styrkirnir eru veittir til verkefna sem snerta börn og eldra fólk og til umhverfismála. Úthlutað er til 82 verkefna um allt land.

Í dag var úthlutað úr Pokasjóði verslunarinnar við athöfn í Salnum í Kópavogi. Tæplega 71 milljón króna var úthlutað til 82 verkefna á sviði umhverfismála, menningar, mannúðar, íþrótta og útivistar um allt land.

Stuðningur við verkefni fyrir börn og unglinga er áberandi að þessu sinni, en samtals er 20 milljónum króna úthlutað til fjölbreyttra úrræða  á því sviði. Styrkir til umhverfismála nema tæpum 38 milljónum króna. Í tilkynningu frá Pokasjóði verslunarinnar kemur fram að hafi frá upphafi úthlutað um 1.300 milljónum króna.

Hæstu styrki Pokasjóðs hljóta Landgræðslufélag Biskupstungna, fimm milljónir króna, til uppgræðslu og stöðvun jarðvegseyðingar á Haukadalsheiði. Þorgrímur Þráinsson fær líka fimm milljónir í mannrækt fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla á næsta skólaári. Olweusaráætlunin fær þrjár milljónir fyrir eineltisáætlun fyrir grunnskóla og leikskóla og Vímulaus æska fær sömuleiðis þrjár milljónir króna. Skógræktarfélag Reykjavíkur fær tvær og hálfa milljón króna í göngustígagerð í Esjuhlíðum. 

Að Pokasjóði standa 160 verslanir um land allt, matvöruverslanir, vínbúðir og sérvöruverslanir. Pokasjóður fær tekjur sínar af sölu plastburðarpoka í þessum verslunum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku