6 íslenskir keppendur á EM fatlaðra
Fyrst birt: 19.06.2012 22:58, Síðast uppfært: 19.06.2012 22:58

Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir er á meðal íslensku keppendanna
Sex íslenskir frjálsíþróttamenn úr röðum fatlaðra halda af stað til Hollands á morgun þar sem þeir keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumeistaramóti fatlaðra. Mótið er haldið í Stadskanaal og hefst keppni 24. júní.
Aldrei hafa fleiri keppendur tekið þátt á mótinu fyrir Íslands hönd en hópinn í ár skipa Helgi Sveinsson og Davíð Jónsson úr Ármanni, Baldur Ævar Baldursson úr Snerpu, Ingeborg Eide Garðarsdóttir úr FH, Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir úr ÍFR og Hulda Sigurjónsdóttir úr Suðra. Þjálfarar í ferðinni eru Kári Jónsson og Ásta Katrín Helgadóttir en fararstjóri er Linda Kristinsdóttir
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













