400 börn drepin í Sýrlandi
Fyrst birt: 07.02.2012 10:58, Síðast uppfært: 07.02.2012 12:29

Sýrlensk börn búsett í Jórdaníu mótmæla Assad forseta. Mynd: Nordic Photos/AFP.
Að minnsta kosti 400 börn hafa verið drepin í Sýrlandi síðan mótmæli hófust þar fyrir 11 mánuðum. Samtökin UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, greindu frá þessu í morgun.
Samtökin telja að fleiri en 400 börn hafi verið handtekin á sama tímabili. Talsmaður UNICEF segir að tölurnar komi frá mannréttindasamtökum í Sýrlandi sem tekin séu trúanleg. Vitnisburðir séu um að börn hafi verið handtekin af handahófi, þau pyntuð og kynferðislega misnotuð.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Skotið á íbúðahverfi í Homs
Homs: Flugskeytum skotið á spítala
Hvað gengur Rússum og Kínverjum til í Sýrlandi?





