4 handteknir í Malmö vegna morðs

Lögregla í Malmö.

Lögreglan í Malmö í Svíþjóð hefur handtekið fjóra menn fyrir morðið á nítján ára dreng í ágúst í fyrra. Grímuklæddir menn skutu hann fyrir utan skyndibitastað í miðborg Malmö um hábjartan dag á sunnudegi. Mennirnir neita allir sök.

Þeir eru á þrítugs- og fertugsaldri. Talið er að morðið tengist uppgjöri undirheimagengja. Mennirnir fjórir eru líka grunaðir um fíkniefna- og vopnalagabrot. Á blaðamannafundi í dag sagði lögreglustjórinn í Malmö að ekkert hefði enn komið í ljós sem tengdi ódæðið við átta önnur morð sem hafa verið framin í Malmö og eru til rannsóknar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku