3 af 4 vilja þjóðaratkvæðagreiðslu
Fyrst birt: 20.09.2011 11:02, Síðast uppfært: 20.09.2011 11:02
Þrír af hverjum fjórum sem afstöðu tóku vilja að þjóðaratkvæðagreiðsla verðu um stjórnarskrárfrumvarp Stjórnlagaráðs. Þetta kemur fram í skoðanakönnum MMR.
Af þeim sögðu tæp 48% að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar ætti að ráða úrslitum um afgreiðslu frumvarpsins, en tæp 28% að þjóðaratkvæðagreiðslan ætti að vera leiðbeinandi fyrir Alþingi. Tæplega fjórðungur, sem tóku afstöðu til spurningarinnar, vildu ekki að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarpið.
818 manns tóku þátt í símakönnun MMR dagana 15.- 18. ágúst. Rúmlega 71% tóku afstöðu til spurningarinnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







