240 gætu misst íbúðina

Um tíu af hundraði skjólstæðinga umboðsmanns skuldara gætu þurft að yfirgefa íbúðina sína til að fá meðferð þar. Ástæðan er sú að þeir hafa ekki efni á að borga af henni. Flestir þeirra verða þá bæði eigna- og skuldlausir eftir meðferðina.

Um 2.400 manns hafa nú fengið umsókn um greiðsluaðlögun samþykkta hjá umboðsmanni skuldara. Eitt af úrræðunum sem fólki stendur til boða er að það geti greitt allt niður í 60 prósent af leiguverði á markaði tímabundið ef það ræður ekki við að greiða af húsnæðislánum sínum. Um tíu prósent þeirra sem fara í gegnum þetta úrræði ráða hins vegar ekki einu sinni við að greiða þessi 60 prósent. Samkvæmt upplýsingum frá umboðsmanni skuldara eru um 240 manns í þessari stöðu, eða tíu prósent þeirra sem hafa fengið umsókn um greiðsluaðlögun samþykkta. Staða þeirra er metin þannig að þeir geti ekki haldið í húsnæðið og í þeim tilvikum er oftast eina ráðið að selja húsnæðið. Skipaður umsjónarmaður skuldarans sér um söluna en skuldarinn fær að búa frítt í íbúðinni meðan hún er á sölu.

Þegar íbúðin selst rennur söluandvirðið upp í veðskuldina, en aðrar kröfur eru í flestum tilfellum afskrifaðar, þó að á því séu undantekningar. Í sumum tilvikum hafa bílar einnig verið seldir upp í þessar skuldir. Eftir situr þá fyrrum íbúðaeigandinn, bæði skuldlaus og eignalaus, en sleppur við gjaldþrot og getur þá byrjað aftur á núlli. Langflestir sem lenda í þessari stöðu eru annaðhvort atvinnulausir eða öryrkjar. Þá býr meirihluti þeirra á höfuðborgarsvæðinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku