200 handteknir í Oakland
Fyrst birt: 29.01.2012 09:02 GMT, Síðast uppfært: 29.01.2012 20:22 GMT

Occupy-hreyfingin efndi til mótmæla víða í Bandaríkjunum í gær. Mynd: Nordic Photos/AFP.
200 þátttakendur í mótmælum Occupy hreyfingarinnar voru handteknir eftir átök við lögreglu í Oakland í Kaliforníu í gærkvöld og í nótt.
Forvígismenn hreyfingarinnar í borginni, á vesturströnd Bandaríkjanna, höfðu skipulagt göngu að yfirgefinni ráðstefnumiðstöð sem þeir hugðust yfirtaka. Lögregla tók sér stöðu milli fólksins og ráðstefnumiðstöðvarinnar til að koma í veg fyrir að göngumenn næðu markmiði sínu.
Talsmaður lögreglunnar sagði að fólk hefði látið flöskum, grjóti og járni rigna yfir lögreglumenn og þrír þeirra særst. Mótmælendur gagnrýndu lögregluna fyrir harkalegar aðferðir, beitingu táragass og barefla.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







