Prenta frétt

Senda frétt Hlusta á frétt

20 sakborningar í Kaupþingsmáli

Sérstakur saksóknari hefur um 20 fyrrverandi starfsmenn og stjórnendur Kaupþings grunaða um refsivert athæfi en þeir störfuðu hjá bankanum þegar meint stórfelld brot stjórnenda Kaupþings áttu sér stað og starfa sumir hverjir hjá Arion banka. Þeir hafa allir hlotið réttarstöðu sakbornings í málinu.

Yfirheyrslur vegna rannsóknarinnar hófust klukkan 10 í morgun og standa enn. Á meðal þeirra sem var yfirheyrður í dag var Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri bankans í Lúxemborg, en vikulangt gæsluvarðhald yfir honum rennur út á morgun. Hreiðar Már Sigurðsson, fv. forstjóri Kaupþings og Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri bankans á Íslandi, losna úr gæsluvarðhaldi í næstu viku.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

6. september 2010

Streymiþjónusta