16-liða úrslitin klárast í kvöld

Kristinn Jónsson skoraði gegn KR í deildinni á miðvikudaginn.


  • Prenta
  • Senda frétt

Í kvöld kemur í ljós hverjir tryggja sér síðustu farseðlanna í 8-liða úrslitin í bikarkeppni karla í knattspyrnu.

Í Vesturbænum eigast við KR og Breiðablik í annað skiptið á innan við viku en Kópavogsliðið hafði betur á heimavelli í deildinni á miðvikudaginn. Í Víkinni taka Víkingar, sem spila í 1. deild, á móti úrvalsdeildarliði Fylkis. Flautað verður til leiks í Frostaskjóli klukkan 19:15 en viðureign Víkings og Fylkis hefst klukkan 20.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku