15 taka þátt í Tour de Ormurinn

Fyrstu þrír i 68 km hringnum komu allir a sömu mínutunni i mark. Unnsteinn Sigurgeirsson varð í 2. sæti, Halldor G. Halldórsson 1. sæti og Rognvaldur Snorrason var í 3. sæti. Mynd: UÍA.
Fimmtán keppendur taka nú þátt í hjólreiðakeppninni Tour de Ormurinn á Fljótsdalshéraði. Hjólaður er hinn svokallaði Fljótsdalshringur. Farið var frá Hallormsstað klukkan níu, því næst var hjólað á Egilsstaði, yfir á Fellabæ, upp í Fell og Fljótsdal og endað aftur á Hallormsstað.
Keppt er í tveimur vegalengdum, 68 og 103 kílómetrum. Akureyringurinn Halldór G. Halldórsson kom fyrstur í mark á tólfta tímanum, hann hjólaði 68 kílómetra á tímanum 2:34:31.
Að sögn Gunnars Gunnarssonar, eins af skipuleggjendum keppninnar, hefur gengið vel og veðurskilyrði eru góð, hlýtt í veðri og skýjað. Hann reiknar með að keppendur sem hjóla lengri vegalengdina verði komnir í mark milli klukkan tvö og þrjú í dag.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














