12 óku undir áhrifum fíkniefna

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.

Tólf ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu um helgina fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Garðabæ.

Fimm voru teknir á laugardag og sjö á sunnudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þetta voru níu karlar á aldrinum 17-34 ára og þrjár konur, 21-28 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku