112-dagurinn er í dag

112-dagurinn er haldinn hátíðlegur í dag. Af því tilefni kynnir Neyðarlínan starfsemi sína í Smáralind í dag ásamt slökkviliði, lögreglu, björgunarsveitum og öðrum sem bregðast við þegar beðið er um aðstoð í gegnum símanúmerið 112. Svipuð dagskrá verður víða um land.

Í Smáralind verða meðal annars sprengjubíll og vélmenni Landhelgisgæslunnar, bátar, fallhlífarbúnaður og fleiri tæki björgunarsveita. Stutt athöfn verður klukkan tvö þar sem skyndihjálparmaður ársins verður meðal annars útnefndur. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku