„Svartur dagur í sögu Alþingis“

Alþingi samþykkti í dag með 30 atkvæðum gegn 15 að kalla stjórnlagaráð saman á ný til fjögurra daga fundar í byrjun mars til að fjalla um spurningar og tillögur stjórnskipunarnefndar að mögulegum breytingum á stjórnarskrá. „Svartur dagur í sögu Alþingis,“ sagði Vigdís Hauksdóttir.
Tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá hafa verið til umfjöllunar á Alþingi í allan vetur. Meirihluti stjórnarflokkanna og Hreyfingarinnar samþykktu síðastliðinn fimmtudag tillögu Þórs Saari, og breytingartillögu, um að kalla ráðið saman á ný til sérstaks fjögurra daga fundar.
Sjálfstæðismenn og stór hluti Framsóknarmanna mótmæltu harðlega vinnubrögðunum og sögðu þau flókin og ruglingsleg.
„Mikil umræða varð um þetta hér í gær og mörgum niðri fyrir. Hér er einfaldlega verið að greiða atkvæði um hvort kalla megi fulltrúa í stjórnlagaráði saman til að fjalla um nokkur álitamál sem meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill ræða við þau um tillögur stjórnlagaráðsins. Það er mér illskiljanlegt að þingmenn hafi á móti slíki samráði,“ sagði Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
„Allt þetta á að gerast án þess að þingið hefji vinnu við að skoða efnisatriði málsins. Og þetta dregur fram í hvers konar ótrúlegar ógöngur hæstvirtur forsætisráðherra hefur stefnt endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þetta er alveg með ólíkindum,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, sagði ekkert hafa breyst í málsmeðferðinni. „Það er alþingi að sjálfsögðu sem hefur öll völd í þessu máli, Alþingi mun taka stjórnarskrána til umfjöllunar, svo verða Alþingiskosningar og svo þarf nýtt Alþingi að taka stjórnarskrána líka til umfjöllunar. Það hefur ekkert breyst. Það eina sem við erum að gera, og það er athyglisvert hvað það stendur í fólki, er að við erum í samráðsferli.“
„Ég tel að þetta sé svartur dagur í sögu Alþingis, síðan ég settist á þing hef ég varað við því hvað koma hér óvönduð mál hér út úr þinginu. Þetta er akkúrat dæmi um slíkt mál og spái ég því hinum mestu hamförum,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
Þór Saari fagnaði niðurstöðunni.
„Þessi atkvæðagreiðsla er eitt skref af mjög mörgum sem verið er að taka til að setja landinu og þjóðinni nýja stjórnarskrá.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







