„Mannréttindi varða okkur öll“

Gréta Salóme og Jónsi Mynd: Ragnar Santos
Greta Salóme Stefánsdóttir, höfundur og flytjandi íslenska Evróvisjón-lagsins, segir fulltrúa Svíþjóðar hafa blandað saman pólitík og söngvakeppninni, en að keppendur hafi verið beðnir um að gera það ekki.
Fréttir hafa borist af því að mótmælendur hafi verið handteknir í Bakú, höfuðborg Aserbaísjan í morgun, eftir fjölmenn götumótmæli þar í gær. Greta sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að íslenski hópurinn hefði ekkert orðið var þau.
„Við höfum ekkert orðið vör við neitt svoleiðis enda hefur oft verið ítrekað við okkur náttúrulega að keppnin er ópólitískur vettvangur og við erum beðin um að blanda ekki pólitík og tónlist saman. Og það er bara það sem við höfum gert, við höfum í raun bara einbeitt okkur að því sem við erum fengin hingað út til að gera.“
Aðspurð segir Greta það rangt að sænska söngkonan, Loreen, sé eini keppandinn í Bakú sem hafi áhyggjur af mannréttindabrotum.
„Ég held reyndar að það sé ekki alveg rétt að segja að hún hafi látið sig málið varða, því mannréttindi varða okkkur öll og það er sama hvaða keppandi það er. Hinsvegar gerði hún það sem við vorum beðin um að gera ekki og það er einmitt að blanda saman pólitík og þessari tónlistarkeppni. Keppnin er auðvitað sameiningartákn fyrst og fremst og eins og ég segi, þetta er bara ópólitískur vettvangur. Við erum bara fengin hingað út til að flytja þetta lag eins vel og við getum og það er það sem við ætlum að skila af okkur. Og fókusinn er eingöngu á það.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












